Spennandi Sæludagur í Hörgársveit

Það verður mikið um að vera á Þelamörk á Sæludeginum. Þar verður Aqa Zumba, íþróttaskóli, hoppukasta…
Það verður mikið um að vera á Þelamörk á Sæludeginum. Þar verður Aqa Zumba, íþróttaskóli, hoppukastalar, andlitsmálning, vöfflukaffi í skólanum svo eitthvað sé nefnt en einnig eru viðburðir í gangi um allt sveitarfélagið.

Sæludagurinn í Hörgársveit fer fram laugardaginn 21. júní 2025. Viðburðir verða víðsvegar um sveitarfélagið, allir ættu að finna sér eitthvað við hæfi.

Sæludagurinn er viðburður sem hefur fest sig í sess í Hörgársveit. Upprunalega var um að ræða einn stóran viðburður sem var haldinn ár hvert á laugardegi um Verslunarmannahelgina, en árið 2023 var ákveðið að prófa að skipta deginum upp í tvennt og halda Sæludaginn í júní og fjölskylduhátíð á Hjalteyri um Verzlunarmannahelgina.

Lífga upp á samfélagið

„Markmiðið var og er að lífga uppá samfélagið og hafa meira um að gera yfir sumartímann í Hörgársveit. Lang flestir hafa fagnað þessari breytingu sem átti sér stað og erum við ánægð með útkomuna,“ segir Kolbrún Lind Malmquist verkefnastjóri hjá Hörgársveit.

Fjölbreytt dagskrá um alla sveit

Á Sæludeginum nú á laugardag verður margt um að vera. Áhersla er lögð á sveitina og Þelamörk. „Lagt er upp úr því að vera með fjölbreytta dagskrá svo sem flestir finni sér eitthvað við hæfi. Í ár er t.d. boðið uppá fjölskyldugöngu um Hraun í Öxnadal undir leiðsögn Villa vandræðaskálds, opinn garður í Fornhaga, Sæludagsopnun á Sólbakka garðyrkjustöð, opið hús hjá KFA á Hjalteyri. Það verður hópreið, trúbador og skemmtun á Ytri-Bægisá og fjölbreytt dagskrá á Þelamörk. Þar verður Aqa Zumba, íþróttaskóli, hoppukastalar, andlitsmálning, vöfflukaffi í skólanum, opinn garður og Höllin verkstæði á Laugalandi svo fátt eitt sé nefnt.

Nýjast