Fréttir

Líf í lundum Lystigarðs

130 ár frá fæðingu Jóns Rögnvaldssona

Lesa meira

Innan við helmingur barna með fjölþættan vanda tekur þátt

Samkvæmt skýrslu um þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi á Akureyri,- Greining á þátttöku barna með fötlun og aðrar áskoranir í íþrótta- og tómstundastarfi og tillögur að úrbótum.

 

Lesa meira

Komið að skuldadögum

Ný ríkisstjórn tók við stjórnartaumunum með skýrt leiðarstef; að rjúfa kyrrstöðu og hefja sókn við uppbyggingu innviða. Við stöndum frammi fyrir mikilli áskorun, enda blasir við vegakerfi sem hefur setið á hakanum um árabil.

Lesa meira

Spennandi Sæludagur í Hörgársveit

Sæludagurinn er viðburður sem hefur fest sig í sess í Hörgársveit. Upprunalega var um að ræða einn stóran viðburður sem var haldinn ár hvert á laugardegi um Verslunarmannahelgina, en árið 2023 var ákveðið að prófa að skipta deginum upp í tvennt og halda Sæludaginn í júní og fjölskylduhátíð á Hjalteyri um Verzlunarmannahelgina.

Lesa meira

Tvær nýjar sýningar í Safnahúsinu á Húsavík: Út úr skugganum og Bakslag

Á morgun, 20. júní kl. 18:00 opna tvær nýjar sýningar í Safnahúsinu á Húsavík. Þær fjalla báðar um hinsegin sögu, sýnileika og réttindi – hvor á sinn hátt.

Lesa meira

YST er listamaður Norðurþings 2025

Ingunn er fædd árið 1951 á Egilsstöðum og ein af fyrstu íbúum bæjarins. Hún lærði sálfræði á Íslandi og í Gautaborg í Svíþjóð, með sérhæfingu í barna- og fjölskylduráðgjöf. Hún starfaði á því sviði í áratug, fyrst hjá Dagvist barna í Reykjavík, þar sem hún sinnti yfir 30 leikskólum, og síðar sem fyrsti heilsugæslusálfræðingur landsins í Norður-Þingeyjarsýslu.

Lesa meira

Maður er manns gaman

Sigurjón Pálsson skrifar um skipulag miðbæja

Lesa meira

Gefa sætisbekki til heiðurs sjómannskonum

Í tilefni Kvenréttindadagsins þann 19. júní hefur stjórn Framsýnar hefur samþykkt að festa kaup á nokkrum sætisbekkjum sem komið verður fyrir í sjávarbyggðum á félagssvæðinu, Húsavík, Raufarhöfn og Kópaskeri. Einnig verði skoðað að koma upp bekkjum í Flatey og við Tungulendingu á Tjörnesi

Lesa meira

Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru

Sigríður Stefánsdóttir hefur tekið við formennsku í stjórn Rauða krossins á Íslandi (RKÍ) af Silju Báru Ómarsdóttur. Sigríður hefur verið varaformaður undanfarin þrjú ár, átti sæti í stjórn Eyjafjarðardeildar félagsins frá 2021 og hefur verið sjálfboðaliði allt frá 2017.

Lesa meira

Handtökur vegna fíkniefnaframleiðslu

Um kl. 10 í gærmorgun, 18. júní, var farið í samræmdar lögregluaðgerðir á nokkrum stöðum á landinu, m.a. á Raufarhöfn þar sem framkvæmdar voru húsleitir að undangengnum úrskurðum frá Héraðsdómi Norðurlands eystra

Lesa meira

Mála tröppur í öllum regnbogans litum

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin dagana 18.-22. júní 2025.

Lesa meira

Gangbraut sem virðist svífa í lausu lofti

Um helgina var máluð þrívíddargangbraut yfir Listagilið á móts við Listasafnið. Sambærileg gangbraut hefur áður verið máluð á Ísafirði og hlotið talsverða athygli.

Lesa meira

Nú förum við alveg að breytast í slím

Á morgun, fimmtudaginn 19. júní fara fram aðrir upphitunartónleikar af þremur fyrir menningarhátíðina Mannfólkið breytist í slím. Tónleikarnir fara fram á Akureyri Backpackers þar sem fram koma Drinni & The Dangerous Thoughts, Oscar Leone og DJ Mamalón

Lesa meira

Börnunum finnst vanta rusladall

Börn á leikskólanum Klöppum fara mikið í Kvenfélagsreitinni. Þeim þykir ruslið og mikið og steininn tók út þegar poki með hundakúk fannst á svæðinu. Þau biðja bæjarstjóra um að redda rusladalli á svæðið.

Lesa meira

Veglegur styrkur kvennakvölds Þórs og KA

Ár hvert fer fram glæsilegt kvennakvöld Þórs og KA og afhenti kvennakvöldsnefndin kvennaliðum félaganna veglega styrki á mánudaginn í leikhléi í leik Þórs/KA og Breiðabliks í Boganum. Hver deild fékk í ár styrk að upphæð 1,5 milljónir sem kemur sér ansi vel í rekstri liðanna okkar.

Lesa meira

Dúxar komu frá Dalvík

Menntaskólanum á Akureyri slitið í 145. sinn

Lesa meira

Þingeyjarsveit - Ásdís og Yngvi Ragnar hljóta menningarverðlaunin

Menningarverðlaun Þingeyjarsveitar eru veitt þeim einstaklingum, hópi eða félagasamtökum, sem hafa á einhvern hátt þótt skara fram úr og lagt sitt af mörkum við að efla menningarstarf í sveitarfélaginu. Það er á höndum íþrótta-tómstunda- og menningarnefndar að gera tillögu að því hver hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarstarf með hliðsjón af tilnefningum og ábendingum.

Lesa meira

Hvolpasveitin sló í gegn hjá þeim yngstu

Það var margt um manninn á 17. júní hátíðarhöldum í Lystigarðinum í gær en meðal ungviðisins var það helst Hvolpasveitin sem heillaði alla uppúr skónum.

Lesa meira

Evrópuleikur KA verður á Akureyri í lok júlí

Það ríkir mikil gleði og þakklæti í herbúðum KA, nú þegar ljóst er að félagið fær að spila heimaleik sinn í 2. umferð Sambandsdeildarinnar á Akureyri – eftir að UEFA veitti félaginu sérstaka undanþágu til leikjahalds á Greifavellinum í fyrstu tveim umferðum Sambandsdeildarinnar. Eins og fram hefur komið situr KA hjá í fyrstu umferð og mun því spila fyrsta leik sinn í Sambandsdeildinni í 2. umferð.

Lesa meira

Húni ll EA siglir í dag í tilefni þjóðhátíðardagsins

Boðið verður upp á siglingu með Húna II kl. 16.30. Siglt er frá Fiskihöfninni norðan við ÚA, beint neðan við Hagkaup. Siglingin er 45 mínútna löng. Bætt verður við annarri siglingu kl. 17.15 ef þörf verður á.

Lesa meira

Stærsti brautskráningarhópur Háskólans á Akureyri frá upphafi

Háskólahátíð — brautskráning kandídata frá Háskólanum á Akureyri fór fram í fjórum athöfnum í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri 13. og 14. júní. Aldrei hafa fleiri kandídatar brautskráðst frá háskólanum en samtals brautskráðist 591 kandídat í grunn- og framhaldsnámi af tveimur fræðasviðum.

Lesa meira

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst miðvikudaginn 18. júní og stendur til og með 22. júní.

Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti.

Lesa meira

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní á Akureyri

Þjóðhátíðardagskrá verður 17. júní frá kl. 13-17 í Lystigarðinum, á MA-túninu og í næsta nágrenni þess.

Blómabíllinn leggur af stað frá Naustaskóla kl. 11.00, keyrir í gegnum íbúðahverfin, niður Listagilið, eftir Strandgötunni og víðar þar sem ómur berst frá palli bílsins með viðeigandi 17. júní lögum. Hlustum eftir lögunum og vinkum blómabílnum okkar. Akstursleið blómabílsins er að finna HÉR!

Lesa meira

Brot úr sögu ÚA í myndum til sýnis á Glerártorgi

Ljósmyndasýningin „ Útgerðarfélag Akureyringa 80 ára ( 1945 – 2025) Sögubrot í myndum“ hefur verið sett upp við verslunarmiðstöðina Glerártorg á Akureyri og mun standa þar um tíma. 

Lesa meira

Batnandi manni er best að lifa.

Það er að renna upp fyrir mér þessa dagana hvernig ég hlýt að koma öðru fólki fyrir sjónir. Einkum á það við þegar ég lít gleraugnalaus í spegil. Þá stend ég andspænis manni sem ég kannast lítið við. Skin og skúrar tilverunnar hafa markað andlitið og þau fáu hár sem eftir eru á höfðinu eru hvít að lit. Og ef ég geri þau reginmistök að snúa mér í kvart-hring fyrir framan spegilinn, þá sé ég að engu líkara en að maginn á mér hafi þjófstartað deginum og hafi náð að vera aðeins á undan mér fram úr svefnherberginu. Hann er ekki ósvipaður stefninu á nýju Samherjatogurunum og þótt svona stefni fari togskipum vel þá er þau ófögur sjón framan á mér. Ég þarf að horfast í augu við það að ég hef orðið að holdgervingi alls hins illa í mannlegri tilveru. Þó andlit mitt sé að mestu rautt og appelsínugult þá telst ég hvítur. Og þegar ég lít niður sé ég gripinn sem lætur lítið yfir sér en dugði þó til þess að þegar ég fæddist ákváðu færustu sérfræðingar að ég væri karlkyns. Ég er hvítur, miðaldra karlmaður. Ég fullkomna svo verkið með því að klæða mig í jakkafötin og luntast í vinnuna.

Lesa meira

Kórfélagi með klarínett í annarri og leikgleði í hinni

Vísindafólkið okkar – Hólmdís Freyja Methúsalemsdóttir

„Vísindafólkið okkar er mánaðarleg kynning á vísindafólkinu okkar. Hólmdís Freyja Methúsalemsdóttir, aðjúnkt við Iðjuþjálfunardeild er vísindamanneskja júnímánaðar“

Hólmdís kemur frá austfirsku náttúruparadísinni Vopnafirði, þar sem hún fæddist árið 1979, en á líka sterkar rætur í Aðaldalnum þar sem móðurforeldrar hennar bjuggu. Hún ólst upp í nálægð við sjó, kletta og fjörur og undi sér vel í náttúrunni en hvort sem var inni eða úti var bók yfirleitt við höndina. „Þrátt fyrir að vera alin upp í sjávarþorpi þá var sveitin ekki langt undan og á hverju vori fór ég í sauðburð í Aðaldalinn og frá 11 ára aldri var ég í sveit hjá föðursystur minni og vann meðal annars við að sýna Minjasafnið á Bustarfelli í nokkur sumur.“

Lesa meira

Sjúkrahúsið á Akureyri Jákvæð rekstrarniðurstaða þrátt fyrir áskoranir

Rekstur Sjúkrahússins á Akureyri, SAk skilaði jákvæðri niðurstöðu upp á 189 milljónir króna árið 2024, þrátt fyrir uppsafnaðan halla við upphaf ársins. Þetta kom fram í erindi fjármálastjóra á ársfundi sjúkrahússins og greint er frá á vefsíðu SAk.

Lesa meira